|
V-Drums Lite®
HD-1

*Trommuleikur
er fyrir alla og Roland HD-1 raftrommusettin eru frábær leið til
að bæta takti og tónum við líf þitt!
*Roland HD-1
V-drums raftrommusettið er fyrir alla sem hafa yndi af
áslætti.
Það er
fyrirferðarlítið, slitsterkt, hlaðið alvöru trommuhljóðum og
hentar fullkomlega á heimilið, skrifstofuna, í heimastúdíóið eða
á sviðið. Hvort sem þú ert byrjandi eða lengra kominn er HD-1
frábær leið til að skemmta sér og kynnast tónlist.
*Trommuhljóð í
sérflokki.
Roland er leiðandi
fyrirtæki á sviði hönnunar rafrænna trommuhljóða, og er HD-1 þar
engin undantekning. Í hljóðbanka HD-1 er að finna urmul
trommuhljóða í sérflokki (Listinn er á baksíðu).
*Hljóðlausir
plattar.
Einn hinna
fjölmörgu kosta raftrommusetta er alger stjórn á tónstyrk.
Hinir margverðlaunuðu Roland trommuplattar eru ekki einungis
þægilegir í notkun, þeir eru næsta hljóðlausir út á við svo
nágrannar verða ekki fyrir ónæði. Meira að segja
fótpedalarnir voru sérhannaðir með þetta í huga, þeir snerta
ekki gólfflötinn og draga þar með úr gólfhljóðum og
titringi.
*Einföld
uppsetning- tilbúið til notkunar.
Þar sem HD-1
settið er nánast allt á einu statífi er uppsetning mjög auðveld
og fljótleg. Bara að taka það úr kassanum og byrja að spila!
Þessi frumlega hönnun auðveldar einnig alla flutninga, og gefur
settinu snyrtilegt útlit.
*Tjáning í
tónum.
HD-1
raftrommusettið er frábær leið til að efla tónlistarlífið á þínu
heimili! Notað með t.d. Roland rafpíanóunum vinsælu (sjá mynd)
mun HD-1 settið verða lykillinn að frábærri fjölskylduskemmtun
og tónmennt.
*Æft í friði.
Tengdu heyrnartól
við hljóðbankann (seld sér) og æfðu þig í ró og næði að degi eða
nóttu. Þú ræður tónstyrknum, en nágrannar verða einskis varir.
Innbyggður taktmælir og hraðastillir hjálpa þér að bæta
taktskynið á meðan þú æfir þig.

*Tengdu
tónlistina þína við HD-1.
Með MIX IN
tenginu á HD-1 getur þú tengt iPod® tækið þitt, eða hvaða
spilastokk sem er, við settið og trommað með eftirlætislögunum
þínum. Einnig er hægt að hlaða niður lögum af Roland V-drums
síðunni (www.v-drums.com)
og upplifa þannig samspil með hljómsveit.
*DVD diskur
innifalinn.
Með í kaupunum á
nýju HD-1 setti fylgir DVD kennsludiskur sem sýnir uppsetninguna
á settinu þínu auk þess sem þar eru gefin góð ráð um trommuleik.
*Auðvelt í
notkun.
Með sína stóru
upplýstu hnappa og auðvelda stjórnborð er HD-1 settið sérlega
notendavænt. Þrýstu bara á Drum Kits hnappana (1-5) og þú
hefur úr 5 mismunandi trommusettum að velja. Ef þrýst er á
VARIATION hnappinn koma upp 5 sett til viðbótar.
*Sérhannaðir
fylgihlutir.
Veldu úr
fjölmörgum sérhönnuðum fylgihlutum, til að mynda PM-01
(trommuhátalara), TDM-1 (trommugólfmotta) og DAP-1
(fylgihlutapakka). Þessir spennandi aukahlutir bæta krafti,
hagkvæmni og þægindum við settið þitt.
PM-01.
Fullkominn félagi.
Að notast við
heyrnartól er góð aðferð til að æfa sig, en þegar þú vilt láta í
þér heyra er PM-01 hin fullkomna lausn. Hann er nettur, hljómar
einstaklega vel og er sérhannaður með tilliti til útlits og
eiginleika HD-1.
DAP-1.
Bráðnauðsyn
hverjum trommara. Þessi snjalli fylgihlutapakki er fullkominn
fyrir byrjendur, og gerir þeim kleift að hefja leik strax og
heim er komið.
TDM-1.
Þessi gólfmotta er
sérhönnuð fyrir HD-1 settið. Hún dregur úr titringi og verndar
gólfið þitt.
 |