Opnunartími     
Rín ehf | Hljóðfæraverslun mán - fös | 10:00 - 18:00
Brautarholt 2 | 105 Reykjavík lau | 12:00 - 15:00
Sími: 551 7692      
 
asdf

Um Rín

Hljóðfæraverslunin Rín var stofnuð árið 1942 af Stefáni og Herdísi Lyngdal. Keppinautar hafa komið og farið í áranna rás, en Rín hefur staðið traustum fótum í hljóðfæraviðskiptum í 70 ár. Þegar búðin var opnuð geisaði stríð og vörur fengust ekki nema frá Austur-Evrópu. Hljóðfærastreymið um Rín hefur aukist að umfangi og fjölbreytni í áranna rás, en úrvalið hefur mótast af tísku hvers tíma. Stefán Lyngdal var þekktur harmónikkuleikari á sinni tíð og nikkan skipaði verulegan sess í hillum Rínar.
 

Auk hljóðfæra voru í upphafi einnig seldar rafmagnsvörur og ljósabúnaður. Verslunin var fyrst á Njálsgötu 23 og um tíma með útibú á horni Laugavegar og Vitastígs. Stefán og Herdís festu síðan kaup á húsnæði Rínar við Frakkastíg skömmu áður en Stefán lést árið 1962. Búðin stóð þar í ein 40 ár eða þar til plássleysið fór að segja til sín. Hljóðfæraverslunin Rín flutti starfsemi sína í stórt og bjart húsnæði að horninu á Stórholti og Brautarholti í júlí 2004 og stendur þar enn í dag.